Þá er að verða komið að þessu...

Tælandsferð hefst á morgun...Cool

Eigum flug kl. 18.55 og áætlaður komutími í Bangkok kl. 12.30 á þriðjudag...

þannig að ég segi bara

Bless Bless... farvel... goodbye... arrivaderci... adios... bæbæ...Whistling

Versta er að ég hef ekki hugmynd um hvernig ég segi neitt á tælensku...Undecided

en þangað til næst farið vel með ykkur... InLove

knús Þóra og co


Nýjar myndir...

Smá innblástur...

Myndir frá jólamarkaði.. Desember 2007

Knús Fiðrildið...


FRÍ ÞESSA VIKU;o)

Jamm dejligt...

er í fríi þessa viku í minni krefjandi vinnu (er reyndar með eina kvöldvakt í kvöld)... nú og svo á ég bara eftir að vinna 2 vikur og er svo barasta farin til Tælands...

AHH í sól, sand, lúksus og nudd... uuhhmm

okkur fjölskylduna hlakkar ekki lítið til..hehe við búin að fara í þær sprautur sem þarf og alles klar...

og eitt er víst að ekki ætlum við að pakka... bara taka tómar töskur og tannbursta...híhí

En ferðaáætlun er sem hér segir... (í grófum dráttum, því aðal málið er að slappa af og ekki plana of mikið;)

3.3 flogið til bangkok (lent 4.3)

2 nætur á 2ja stjörnu hóteli í bangkok (shop till u drop;)

þetta: http://www.sawadee.com/hotel/bangkok/firsthotel/pictures.html

6.3 flogið frá BKK til phuket tékkað inn á ca 3ja stjörnu resort og spa hótel...

þetta: http://www.sawadee.com/hotel/phuket/katapalm/pictures.html

11 dagar/nætur í sól, sand,vatni og skoðunarferðum... (ekki má gleyma nuddinu)

17.3 flogið frá phuket til bangkok tjékkað inn á geggjað 4ra stjörnu hótel... sem notabene er með innangengt í eitt af aðal shoppingmollunum í bangkok..hehe

þetta: http://www.sawadee.com/hotel/bangkok/pathumwanprincess/pictures.html

18.3 flogið heim til DK að halda páskafrí...;o)

knús

Fiðrildið  

 


Komin "heim"...

og ég sver thad... thad er sko ekki mikid hlýrra hérna thó ad thad sé 4 stiga hiti hér...

Thetta med ad vera komin heim... fer heim til íslands og kem svo heim til DK... held ad thad myndi ekki breyta neinu thó ég byggi hérna í 30 ár eda 50 ár... ég myndi alltaf fara HEIM TIL ÍSLANDS... 

fékk hálfgerda ónota tilfinningu thegar ég skrifadi 30 eda 50 ár... gæti sko ekki hugsad mér thad... er svooo tilbúin til ad flytja HEIM....

Og nú er bara mánudur í tælands ferd...GrinLoL

Ciao Fidrildid 

 


á ÍSlandi...

Fiðrildið er á ÍSlandi... fýkur um snjóiþakta móa og mela...LoL

knús úr frostinu...

hrímhvíta freðna fiðrildið


ein vika eins og heil öld...

Ótrúlegt alveg hvað ég er háð þessu blessaða interneti.... er búin að vera net og heimasímalaus alla vikuna... og mér finnst þetta vera eins og heil öld...

Kanski sérstaklega þar sem ég var í miðju kafi að planleggja ferð til Thailands fyrir okkur fjölsk. en ég var einmitt búin að ná að panta flugmiðana og fyrstu 2 næturnar á hóteli þegar allt klikkaði....

En nú er allt komið í lag... það kostaði bara 3 klukkutíma löng símtöl (úr GSM notabene), útskiptingu á öllu.. router, leiðslum osfrv. og að lokum tæknimannn á svæðið áðan til að komast að því að það væri ekkert að hér... þetta lægi inni hjá "þeim"... og ég hringdi eina ferðina enn... og viti menn... þeir komust að því að þetta væri af því að þeir voru búnir að auka hraðann á internetinu og mikið til að línan inní húsið gæti annað því... vorum nebbla komin í 8 GB... 

Það er nebbla öll önnur fyrirtæki búin að vera lækka verðin hjá sér til muna og til að geta haldið þessu verði hafa þeir alltaf bara aukið hraðan hjá okkur... en nóg um það... ég ætlaði að segja ykkur meira frá þessari ferð okkar...hehe

Við erum semsagt að fara til Thailands... og það mjög fljótlega eða 3 mars... fljúgum til Bangkok og verðum þar fyrstu 2 næturnar og fljúgum svo til Phuket og annað hvort verðum við þar í 7 nætur og svo í Khao lak í 5 eða vi verðum restina af tímanum á phuket og tökum dagsferðir þaðan... en þetta er einmitt aðal ástæðan fyrir hve erfitt var að vera netlaus... er að planleggja þessa ferð og nota netið bæði til að afla mér upplýsinga og panta flug og hótel og allt sem þarf...

En þetta verður örugglega frábær ferð... en ástæðan fyrir því að við ákváðum að fara þessa ferð er að við eigum stór og hálfstór afmæli í ár og ætluðum að bjóða í rosa veislu hérna í sumar en af því að við flytjum heim til íslands í sumar verður engin veisla og þess vegna ætlum við að ferðast í staðin... GÓÐ HUGMYND...Grin ik'...??

en nú verð ég víst að fara koma mér af stað... er að fara í vinnuna... er að vinna á sama skóladagheimilinu sem ég hef verið að vinna á síðustu 2 ár... en bara í nýrri "deild" með stráka sem eru með ADHD (athyglisbrest og ofvirkni held ég að þetta kallist á ísl.) þetta eru 5 strákar sem eru í sér bekk, þeir eru á aldrinum 10-12 ára og kunna varla að lesa eða skrifa... það sem ég hef séð hjá þessum strákum hef ég aldrei séð jafn slæmt hjá neinum börnum á íslandi sem þó hafa verið greind... en það er efni í aðra færslu...hehe

knús og kossar... lov jú

Þóra

ps er væntanleg til Íslands í 3 daga í endaðan jan... er að fara kíkja á hús...kem seinnipart 30... 

 

   

 


Gleðilega hátíð...;o)

Gleðilega hátíð elskurnar mínar..."allar"Heart og farsælt komandi árWizard

Flögrandi jólaknús

FiðrldiðHeart


Yngsta fiðrildið á heimilinu á afmæli í dag...

islandri 004 Til hamingju sætasta snúlla...;o) islandri 039

 

Smá sería... islandri 111  islandri 272  islandri 416  islandri 433

InLoveTil hamingju Aldís Ósk!!InLove

Knús Mamma Fiðrildi


Frk.Fiðrildi...

Einu sinni var ung stúlka sem átti sér draum.... Stúlka þessi var kennd við fiðrildi...

Stúlkan varð eldri (ekki mikið samt;) en draumurinn var ennþá sá sami...

Nú er komið að því að draumurinn fari að rætast...

Áætlað er að þegar fiðrildið flýgur heim eftir margra ára fjarveru mun draumurinn um að eignast eigin verslun verða að veruleika...

So stay tuned for more information...hehe

Einnig munu verða settar inn myndir hér af nokkru af því sem mun verða til sölu í búðinni... og hafiði áhuga á einhverju, þá bara skrifið mér línu...

Flögrandi knús til allra...

Fiðrildið.. 


« Fyrri síða

Um bloggið

Þóra Hvanndal

Höfundur

Þóra Hvanndal
Þóra Hvanndal
Ég er búsett í Danmörku og var að stofna eigið fyrirtæki þar sem ég hanna og handgeri skartgripi úr silfri sem ég nota með roði og hrauni... spennandi..?? það finnst mér.. og greinilega fleirum, vegna þess að þetta er nú bara farið að ganga ágætlega..;o) 

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • jotlandskartogmusical 167
  • jotlandskartogmusical 167
  • Silfur hringur með ísl hrauni
  • silfur hringar með hrauni
  • roð armbönd með silfur spennu

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 352

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband